28. janúar 2009

Nemendur 4.-10. bekkjar verða eftir í skólanum í dag í umsjón foreldra. Meðal annars verður farið í fatasund og leiki og teknar nokkrar umferðir í félagsvist.

16. janúar 2009

Nemendur, sem fóru í heimsókn í Laugargerðisskóla, eru alsælir með ferðina og við þökkum Lauggerðingum kærlega gott boð sem verður vonandi endurgoldið fyrr en síðar. Einnig skemmtu nemendur sér vel á Vesturlands - Samfés tónleikunum. Ekki spillti fyrir að sigurvegarinn var frá Grunnskóla Snæfellsbæjar, Alda Dís Arnardóttir.

Framundan er "æfingaspilakvöld" mánudagskvöldið 19. janúar kl 20:30. Þá vonast nemendur til að sem flestir "fullorðnir" komi og hjálpi þeim yngri að læra að spila félagsvist og þær reglur sem henni fylgja. Í framhaldinu væri hægt að koma á "alvöru" spilakvöldum fyrir unga sem aldna.

13. janúar 2009

Nemendum 8.-10. bekkjar býðst að fara  á vegum félagsmiðstöðvarinnar Afdreps á Vesturlandskeppni í söngvakeppni Samfés á morgun, miðvikudaginn 14. janúar.

Fimmtudaginn 15. janúar býður Laugargerðisskóli nemendum 6.-10. bekkjar að vera með sér á 'löngum degi' í íþróttum og leikjum. Farið verður strax að skóla loknum en 'löngum degi' lýkur kl 22:00.

 

6. janúar 2009

Gleðilegt nýtt ár 

 

18.12.2008

Gleðileg jól        

Skóli hefst að loknu jólaleyfi, þann 6. janúar 2009

17.12.2008

Jólatónleikar tónlistarskólanemenda og litlu jól verða á morgun, fimmtudaginn 18. desember, og hefjast kl. 15:00. 

Kaffihlaðborð í boði foreldra og mötuneytis.

Nemendur selja skólablað til styrktar nemendasjóði.

Allir velkomnir

 

12.12.2008

Í gær fengum við frábæra heimsókn. Leikhópurinn Vinir kom og sýndi okkur verkið 'Uppáhaldsævintýri sportálfsins' og það var mikið grín, mikið gaman og mikil alvara. Því miður gleymdum við að taka myndir af þessum litríku persónum og kvikindum sem okkur birtust í sýningunni. Leikhópurinn er okkur ekki með öllu ókunnugur því tveir meðlimir hans, þeir Kári Viðarsson frá Hellissandi og Smári félagi hans, voru hjá okkur með leiklistarnámskeið í haust, við góðar undirtektir nemenda.

Það styttist í jólafrí og litlu jól og tónleikar tónlistarskólanemenda verða fimmtudaginn 18. desember og hefjast kl 15:00. Allir velkomnir :)

02.12.2008

Myndir frá jólaföndri og leirvinnslu á vefnum.

26. nóvember 2008

Nemendur úr 1.-6. bekk hernámu eyjuna í lóninu í síðustu viku. Þeir höfðu undirbúið hernámið og framleitt flögg til að merkja sér hana. Þeir gáfu eyjunni nafnið Lóney. Hún verður síðar skreytt hinum ýmsu listaverkum, mismunandi eftir veðri og vindum.

Hernámið var táknrænn gjörningur en hugmyndin að baki er sú að stofna sprotafyrirtæki og hefja framleiðslu á töfrasprotum. Töfra fram nýjar hugmyndir til að styrkja jákvæðni, bjartsýni og nýjar lausnir.

Slagorðið er:  „ÁFRAM ÍSLAND“

7.11. 2008

Nemendur 6. bekkjar hafa verið að læra veðurfræði og unnu þessa sýningu um ský og skýjafar.

Næsta þriðjudagsmorgun, 11. nóvember, verður bókmenntadagskrá fyrir börn og unglinga. Dagskráin kallast 'Með hugann fullan af hetjudraumum' en til okkar koma ljóðskáldið Aðalsteinn Ásberg og söngvaskáldið Svavar Knútur. Þeir flytja brot úr verkum Steins Steinarrs og segja frá lífi hans og list. Verkefnið er samstarfsverkefni 'Skálda í skólum' og 'Tónlistar fyrir alla'.

 

28.10. 2008

Nú er kominn vetur samkvæmt almanaki og veðri og styttist í vetrarfrí sem hefst að skóla loknum miðvikudaginn 29. október. Nemendur mæta aftur í skóla þriðjudaginn 4. nóvember. 

Nokkuð snjóþungt er orðið kringum skólann og ekki bílfært nema rétt inn á innkeyrsluna.

Skólabílar sækja nemendur og skila heim að bæjum frá 1. nóvember til 15. mars þannig að eftir vetrarfrí þarf ekki lengur að ganga afleggjara.

Þann 6. nóvember gefst nemendum 8.-10. bekkjar tækifæri til að fara á æskulýðsdansleik í Borgarnesi með félagsmiðstöðinni Afdrepi í Ólafsvík.

06.10.2008

Fyrsta október var uppskera sótt í kálgarð og best höfðu dafnað kartöflur og næpur.

Einnig radísur en þar sem þær spruttu svo fljótt höfðu þær myndað langa leggi með blómum og gríðarmiklum fræbelgjum. Við höfum notað fræbelgina í salat, þeir eru ágætlega bragðgóðir en mismjúkir undir tönn.

Námskrá fyrir skólaveturinn 2008-2009 er komin á vefinn.

Starfsdagur kennara verður miðvikudaginn 8. október og nemendur mæta ekki í skólann þann dag.

30.09.2008

Nemendur 9.-10. bekkjar hafa verið svo heppnir að fá frönskukennslu einu sinni í viku. Það er hann Renaud frá Frakklandi sem kennir en hann býr í Ólafsvík um þessar mundir. 

Í gær, mánudaginn 29. september, var forvarnarfræðsla á vegum Marita í safnaðarheimilinu í Ólafsvík. Nemendur 8.-10. bekkjar mættu þar á fundi með Magnúsi Stefánssyni sem sér um fræðsluna.

Á morgun, 1. október, tökum við upp úr kálgarði. Spennandi verður að sjá hvað náð hefur að vaxa ætilegt í bland við arfa og hlaðkollu sem að vísu eru ágætustu heilsujurtir.

Á fimmtudaginn næsta verður ball fyrir 8.-10. bekk í Grunnskólanum í Ólafsvík og stendur frá kl 20-22. Sjóræningjaþema verður á ballinu og aðgangseyrir er 150 krónur.

 

 

19.09.2008

Nemendur hafa undanfarna tvo fimmtudaga verið á leiklistarnámskeiði hjá Kára Viðarssyni og félögum hans þeim Smára og Jess. Nemendur voru mjög ánægðir með námskeiðið og hafa lært ýmislegt gagnlegt sem eflaust kemur í ljós í skólastarfinu síðar í vetur. Við þökkum leiðbeinendunum kærlega fyrir.

Fimmtudaginn 18. september fengum við tónlist fyrir alla. Til okkar komu Iris Kramer og Hrólfur Vagnsson frá Bolungarvík. Þau kenndu okkur margt skemmtilegt og fróðlegt um blásturshljóðfæri og spiluðu nokkur lög. 

Nemendum gafst færi á að spila á  vatnslagnarör frá Húsasmiðjunni og í forláta Alpahorn. Við þökkum Iris og Hrólfi fyrir þeirra innlegg í skólastarfið.

4. september 2008

Í dag fara allir nemendur skólans í berjaferð. Farið verður  í hraunið fyrir ofan Dagverðará.  Klukkan eitt eiga allir að vera komnir í pylsukofann hjá Haddý á Arnarstapa í hádegismat og hopp á bumbu og að því loknu verður haldið heim.

Undirbúningur fyrir ræktun í gróðurhúsi er hafinn en kálgarð misstum við í hlaðkollugróður í sumar. Þó vex þar ýmislegt grænmeti og verður leyft að þroskast þar til síðar í mánuðinum.

Framundan er upphaf þróunarverkefnis í lestri og lesskilningi sem vonandi á eftir að skila skínandi árangri nemenda í hvívetna.

 

15.08.2008

Vinna kennara hafin. Skólasetning kl 14:00 miðvikudaginn 20. ágúst.

Matseðill kominn á vefinn og rétt skóladagatal.

 

 

 

 

Vefumsjón Haukur Þórðarson hays@vortex.is